Auðvitað ....

... telur hann sig ekki hafa gert neitt rangt.  Hann bara notaði þær aðferðir sem Asninn Wenger kenndi honum hjá Arsenal !!!!!
mbl.is Adebayor: Hef ekki gert neitt rangt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látið hvönnina vera!

Þá getur hún vonandi hulið ruslahauginn (hrafnslaupinn) á Laugarnesinu.
mbl.is Risahvönn ógnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar ekki eitthvað

Mér finnst einhvernveginn að ég hafi heyrt í fréttum nýlega að bæði sérstakur saksóknari og efnahagsbrotadeild lögreglunar hafi þurft að segja upp fólki og skera niður starfsemina VEGNA NIÐURSKURÐAR Á FJÁRMAGNI TIL EMBÆTTANA.

Er þetta kannske bara sýndarmennska til að friða "lýðinn"


mbl.is Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er nú samviskan góð

Af hverju vill fólkið ekki sýna á sér andlitið?  Er það kannske vegna þess að þau vita að þau eru að fremja lögbrot og að það eru sárafáir sem styðja þessi lögbrot þeirra?  Eða er þetta bara skríll sem fær útrás fyrir skemmdarfýkn sína með þessum hætti.
mbl.is Sex mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og launin eru ?????????

Í framhaldi af umræðu síðustu daga finnst mér að það eigi að gefa upp laun allra forstöðumanna sem ráðnir eru til ríkisins og þeirra sem ætla má að hafi há laun, t.d. ráðuneytisstjóra.

Einnig að birta alla starfslokasamninga þar sem um er að ræða lengri uppsagnarfrest en 6 mánuði, og öll hlunnindi og allar greiðslur umfram mánaðarlaun.

Það væri t.d. gaman ef einhver af okkar frábæru "blaðamönnum" grennslaðist fyrir um það hvort Davíð Oddsson lætur sér nægja rífleg eftirlaun sem fyrrverandi ráðherra eða hvort hann þiggur einnig eftirlaun  sem fyrrvarandi Seðlabankastjóri.


mbl.is Svanhvít áfram forstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómissandi fólk

Einhvernveginn finnst mér þetta ljóð KK passa vel við þá félaga Kristinn og Jón Magnússon:

Allsnakinn kemurðu í heiminn
allsnakinn ferðu burt
frá þessum dauðu hlutum
sem þér fannst þú hafa dregið á þurrt

og eftir lífsins vegi
fer það sem hann fer
og veistu á miðjum degi
dauðinn, tekur mál af þér

ofmetnastu ekki
af lífsins móður mjólk
kirkjugarðar heimsins
geyma ómissandi fólk
(KK)


mbl.is Kristinn: Trúnaðarbrestur olli afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes og Davíð

Skrif Hannesar Hólmsteins um Davíð Oddsson eru jafn trúverðug og yfirlýsingar ríkisstjórnar Norður-Kóreu um heilsufar Kim Jong Il.

Það hljóta að liggja að baki einhverjar undarlegar hvatir þegar maður sem titlar sig sem stjórnarmann í Seðlabanka Íslands og stjórnmálaprófessor við Háskóla Íslands sér sig tilneyddan til að skrifa svona níð um íslenskt þjóðfélag á vef virts erlends tímarits.


mbl.is Hannes Hólmsteinn: Óvinir Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náhirð

Þetta orð hefur oft verið að skjóta upp kollinum að undanförnu.  Hvað er "náhirð"?

Eru það nánustu vinir eða náir frjálshyggjunnar?

 


mbl.is Geir þakkar stjórum Seðlabanka vel unnin störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Alli

Höfundur

Alli
Alli
Einn af þeim sem er búinn að fá nóg af spillingunni
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • craigbellamy
  • craigbellamy
  • hannesholmsteinn2
  • hannesholmsteinn2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband